Nú er frost á fróni

Þegar þetta er skrifað eru -16 gráður C hér.  Friðrik var hér í dag að snyrta tré.  Fyrstu tréin í Langholti eru síðan 1944, en það ár kom Hákon Bjarnason með fræ til afa, sem hann hafði safnað í Kanada, og kannski líka í Alaska.  Myndin sem fylgir var hins vegar tekin í gær í Þverárhíðinni og þar má sjá …

Breytingar á landbúnaðarkafla aðalskipulags Borgarbyggðar

Þrátt fyrir allar góðar ábendingar ákvað Borgarbyggð að breyta stefnu um landbúnaðarland í aðalskipulagi.  Að mínu mati er þetta til marks um mikið skilningsleysi á eðli og tilgangi landbúnaðar.  Feril málsins má sjá í skipulagsgátt,https://skipulagsgatt.is/issues/2023/386 Myndin sýnir hins vegar þreskingu á höfrum í Stafholtsey 5. október s.l.  Við þreskjum þarna yrkið Niclas sem unir sér vel í sandinum.

Leikskólinn Hnoðraból opnar á Kleppjárnsreykjum

Þann 16. janúar 2021 fór fram formleg opnun leikskólans Hnoðrabóls í nýju húsnæði á Kleppjárnreykjum. Leikskólinn Hnoðraból var til húsa á Grímsstöðum í Reykholtsdal en nú er öll starfsemin kom upp á Kleppjárnsreyki. Í dag starfa alls 12 starfsmenn við Hnoðraból og 30 börn eru við leikskólann. Landlínur komu að hönnun leikskólalóðarinnar ásamt Eflu, sem sá um verkfræðihlutann. Leikskólalóðin er …

Nýr starfsmaður

Nýr starfsmaður hefur verið ráðinn til starfa hjá Landlínum. Starfsmaðurinn er Mareike Tabea Scheller. Hún er með mastergráðu frá University Greifswald í Þýskalandi og B.S. gráðu frá University of Applied Sciences Osnabrück frá sama landi. Mastergráða hennar snýr að ferðamennsku og B.S. gráðan er innan landslagsskipulags. Við fögnum komu Mareike og bjóðum hana velkomna til starfa.

Landlínur 20 ára

Landlínur hóf göngu sína árið 2000 og fagnar því 20 ára afmæli, í tilefni þess var sett upp skilti á Borgarbraut 61. Markmið fyrirtækisins er að vera leiðandi á sínu sviði, ráðgjöf fyrirtækisins byggir á lausnum fyrir íslenskar aðstæður og er sjálfbærni höfð að leiðarljósi við útlausn verkefna. Á 20 árum hafa orðnar miklar breytingar á sviði skipulagsmála og landslagshönnunar …

Ný heimasíða

Staðið hefur yfir vinna við uppfærslu á heimasíðu Landlína. Lögð var áhersla á að síðan yrði aðgengileg fyrir snjalllausnir í símum og spjaldtölvum, hún einfölduð og nútímavædd. Síðan opnaði í febrúarmánuði 2019. Næstu mánuði verður unnið að því að setja inn áhugaverð verkefni sem stofan hefur komið að.

Við erum fagfólk

Við erum þverfaglegt teymi starfsmanna á sviði landslagsarkitektúrs, landfræði og umhverfisskipulags. Skrifstofa okkar er í Borgarnesi. Okkar ráðgjöf byggir á lausnum fyrir íslenskar aðstæður og höfum sjálfbærni að leiðarljósi við úrlausn verkefna okkar. Við leggjum metnað okkar í að vera forvitin, óformleg og ávallt tilbúin til að aðstoða.